Kyrrmyndir úr heimildarmyndinni Skjól í norðrinu. Heimild: IMDb.
Um viðburðinn
Árið 2026 eru liðin 70 ár frá því að ungverskir flóttamenn komu til Íslands í kjölfar ungversku byltingarinnar árið 1956.
Af þessu tilefni býður Ungverska menningarfélagið á Íslandi til sérstakrar minningarhátíðar í Hlégarði í Mosfellsbæ föstudaginn 23. október 2026.
Með sögusýningu, hátíðarræðum, tónlist og ungverskum hátíðarkvöldverði minnumst við flóttamannanna, komu þeirra til Íslands og þess nýja lífs sem þeir hófu hér. Jafnframt fögnum við þeim sterku tengslum sem hafa myndast milli Íslands og Ungverjalands á undanförnum sjötíu árum.
